laugardagur, ágúst 09, 2008

Ritgerðarskrif

Þegar maður tekur upp á því að þrífa baðherbergið klukkan tíu að kvöldi til er það skýrt merki um að maður eigi að vera að gera eitthvað annað sem maður þarf að fá pásu frá. Þetta er svona svipað og þegar jólaföndrið verður alltaf rosalega mikilvægt í miðjum jólaprófum og maður hugsar um allt það sem maður ætlar að föndra einn góðan prófalausan desember mánuð. Þegar sá desember rennur loks upp er áhuginn á jólaföndri að sjálfsögðu ekki neinn.
Ritgerðarskrif eru sem sagt eina þema ágústmánaðar. Ég sveiflast frá því að finnast skriftirnar ganga bara þokkalega frá því að finnast ég ekki vita rass í bala og geta ekki með nokkru móti gert mig skiljanlega á mannamáli. Þar að auki er ég þreytt og ringluð á viðfangsefninu, nenni ekki að kafa dýpra í það en ég hef þegar gert og vonast sífellt til að þetta sé að verða komið hjá mér, en veit alltaf innst inni að það er að minnsta kosti einn hóll (og líklega fleiri) áður en toppinum er náð. Og þá er eftir að dröslast niður á jafnsléttu aftur.
Fussumsvei! Best að reima skóna og halda áfram þramminu.

miðvikudagur, júlí 16, 2008

Miðsumarfréttir

Það hefur verið lítið um blogg hjá mér að undanförnu og er kannski helsta ástæðan fyrir því ævarandi ADSL leysi á heimaslóðum. Ég er búin að hringja svo oft í þjónustuver Tals til að ýta á eftir þessu að það er ábyggilega búið að tengja risastórt viðvörunarskilti við símanúmerið mitt sem blikkar svo í hvert sinn sem ég hringi. Það vantar reyndar ekki almennilegheitin og afsökunarbeiðnirnar frá starfsmönnum en þær verða sífellt minna virði eftir því sem tengingin dregst lengur. En það var nú ekki þetta sem ég ætlaði að blogga um.
Sumarið hefur verið ljómandi gott. Brúðkaup og stórafmæli og ég veit ekki hvað um hverja helgi næstum því en það er útlit fyrir rólegri helgar það sem eftir er af sumrinu. Atli byrjaði á mánudag í íþróttaleikskóla hjá Haukum og er þar í 3 tíma fyrir hádegi. Þvílíkur munur fyrir alla í fjölskyldunni ... sennilega aðallega fyrir gorminn sem er svo ánægður að hitta alla þessa krakka að hann skipar foreldrum sínum bara að drífa sig heim um leið og hann er mættur á morgnana svo hann geti leikið sér í friði. Greyið er reyndar svo þreyttur eftir þetta að hann er varla viðræðuhæfur það sem eftir lifir dags, þrátt fyrir hádegislúr. Það jafnar sig nú vonandi þegar hann venst þessu betur. Svo byrjar hann í leikskólanum Álfasteini 14. ágúst.
Ég reyni að skrifa lokaritgerðina mína á fullu en þegar drengurinn er ekki í leikskóla er ansi misjafnt hvernig tíminn nýtist. Þetta gengur þó alveg þokkalega, ég er búin að fá svör við könnuninni og skrifa fyrstu drög að niðurstöðukafla. Er svo að vinna í fræðilega hlutanum sem er að fá á sig ágætis mynd held ég. Nú er hins vegar komin svolítil pressa á mig að drífa í að klára þar sem ég er búin að ráða mig í vinnu á nýjum stað frá 1. september. Ég hef reyndar möguleika á að byrja í hlutastarfi ef ég þarf meiri tíma í ritgerðina en ætla að halda því opnu svona í bili. En þess vegna ætti ég að hætta þessu núna og halda áfram að vinna í ritgerðinni minni. Segi kannski betur frá starfinu síðar.

fimmtudagur, maí 29, 2008

Smá update

Jæja, þá er ameríkuævintýrið bara úti. Við lentum í Keflavík snemma á mánudagsmorgun eftir langt ferðalag með MIKINN farangur. Einhvern veginn hafðist þetta allt saman og gekk bara vel. Núna erum við á Hótel Kjalarlandi en erum búin að taka við íbúðinni okkar. Planið er að mála um helgina og reyna svo að hafa uppi á búslóðinni okkar sem er hér og þar en þó aðallega á Selfossi. Flytjum vonandi inn fljótlega í næstu viku.

miðvikudagur, maí 21, 2008

Spenna

Það er ekki laust við smá spennuhnút í maganum á mér þessa dagana. Við erum á fullu að pakka og þrífa þessa dagana og ég veit hreinlega ekki hvernig það á eftir að ganga að koma öllu þessu dóti til Íslands. Ég spyr mig bara hvaðan þetta kom allt saman!? Það verður a.m.k. talsverður umframfarangur hjá okkur þar sem við ákváðum að senda ekki neitt með skipi.
Í dag sendi ég svo út spurningalista fyrir rannsóknina sem ég er að vinna sem lokaverkefni. Er þar með komin einu skrefi nær útskrift svo ég ætti nú að klára þetta nám fyrr en síðar. Það er samt skrítið að það ætti að vera léttir að vera búin að senda þetta frá mér en einhverra hluta vegna er ég voða stressuð yfir þessu. Sennilega áhrif frá flutningunum þar á ferðinni. Fann líka fyrir því að mynd sem ég horfði á í sjónvarpinu í gær (reyndar um óhuggulega sannsögulega atburði) sat óvenjusterkt í mér. Ég hef nú alveg horft á viðlíka myndir án þess að missa svefn eftir þær ... mig grunar að þetta sé líka bara flutningastress.
Annars var útskrift hjá Andra í dag. Við fórum í þennan ágæta dinner með smá ræðuhöldum og svo auðvitað útskrift. Gormurinn var nú ekki alveg að meika þetta, vissi nefnilega af babú-bílum úti í bílskúr og vildi drífa þetta af svo hann gæti farið að skoða þá. Við mæðginin dóluðumst svo heim eftir matinn en planið hjá paramedicnum var að fara á Peter's pub og fagna. Ætli hann eigi það nú ekki inni.
Eníveis ... eftir 4 daga verð ég á klakanum. ...

miðvikudagur, maí 14, 2008

Betra skap í dag

Jæja, fýlan er held ég bara runnin af mér. Enda þýðir ekkert að vera í fýlu þegar maður er að fara í ferðalag. Læt heyra í mér þegar ég kem til baka.

þriðjudagur, maí 13, 2008

Pirringur

Var að kíkja á stjörnuspána mína á Facebook rétt í þessu (rétt að taka það fram að ég sat öll í keng og með mikinn fýlusvip) en hún var svohljóðandi:
This is supposed to be such a happy time of year, so why are you stressed? Stop putting so much pressure on yourself and remember to enjoy yourself. .
Ákvað því að rétta úr kútnum og reyna að brosa. Hætta að pirra mig yfir því að morguninn fór í gjörsamlega ekki neitt af því ég komst ekki á netið og að þegar ég komst loksins á netið eru flestir á Íslandi sem ég þurfti að ná sambandi við hættir að vinna. Ég þarf líka að hætta að pirra mig á því að tíminn líður ekki nógu hratt þessa dagana og það er of snemmt að pakka öllu dótinu okkar, að fólk svari tölvupósti með því að segja mér að ég fái allar upplýsingar í bréfi þegar þar að kemur og að maðurinn minn geti ekki hunskast til að vera heima og láta sér leiðast líka þegar hann er loksins búinn í þessu námi! Og verð að hætta að láta mér leiðast og húka inni í fýlu þegar ég get gert ýmislegt annað.
En stundum getur maður ekki annað en verið í fýlu. Ég sit enn kenghokin en ég held að fýlusvipurinn sé aðeins að mildast.

sunnudagur, maí 11, 2008

Andri búinn



Eftir tíu næturvaktir í óslitinni röð er Andri loksins búinn! Þá er bara eftir að pakka, kveðja, útskrifast og láta tvær vikur líða áður en við förum aftur á klakann ... ekki endilega í þessari röð samt. ;o)